|
|
08.01.2009 23:08:46 / s.már
 1. Portishead – Third Á dauða mínum átti ég von! ... a.m.k. frekar heldur en svona rosalega sterku comebacki hjá Portishead! Eftir 11 ár er draugaleg rödd Beth Gibbons nánast það eina sem minnir á gömlu trip-hop sveitina frá Bristol. Ekki nóg með að Þessi plata sé miklu dekkri og harðari en fyrri verk sveitarinnar þá er hún einnig búin að losa sig við skrjáfið og samplið sem var einkennandi fyrir rúmum áratug og í staðinn koma ísköld gítarriff. Tær Snilld! 2. Wolf Parade – At Mount Zoomer Þessi var krefjandi og lengi að síast í gegn en At Mount Zoomer gefur frumrauninni Apologies To The Queen Mary ekkert eftir (sem þó er ein af allra bestu plötum áratugarins). Svo mega þeir eiga það að plötualbúmið er það allra ljótasta í ár! ... fimm ára krakki hefði ekki getað gert verr! Mistök ársins að sleppa tónleikum með þeim í nóvember – það hefði verið hin fullkomna afmælisgjöf frá mér til mín. En svona er þetta ... ég fékk þó alltént fallega peysu frá fjölskyldunni í staðinn. 3. Bon Iver – For Emma, Forever Ago Platan kom reyndar út árið 2007 en var endurútgefin af Jagjaguwar í upphafi ársins og fær því að fljóta með. Hún var samin og tekin upp á kaldasta árstíma í fjallakofa einhversstaðar í Wisconsin. Einmannaleiki og angist nístir í gegn. Góð plata til að gráta sig í svefn í svartasta skammdeginu. 4. Fleet Foxes – Fleet Foxes Eitt af hæpum ársins og stendur fyllilega undir því. Grípandi, ljúfar og harmonískar lagasmíðar þar sem m.a. má greina áhrifa þjóðlagatónlistar en einnig frá klassísku poppi og rokki. Þessi kappar hafa allt til brunns að bera til að verða næstu Crosby, Stills og Nash! ... sem er auðvitað jákvætt ekki satt? 5. MGMT – Oracular Spectacular Hér er stöff sem einnig kom fyrst út árið 2007 en þá bara á digital formi. Vínylinn og diskurinn komu svo út í kjölfarið snemma árs 2008. Fjölbreytileikinn er í fyrirrúmi þar sem blandað er saman listavel indí, diskói og elektróník. Hrikalega hresst, stimúlerandi og svallt! ... en samt kannski meira 2007 en 8? Meira góðæris og þá fyrir flugdólga frekar en stórtemplara eins og ákveðinn meðreiðarsveinn útrásarvíkings myndi væntanlega orða það! Ætli Time To Pretend sé ekki frá honum komið? „I’m feeling rough I’m feeling raw I'm in the prime of my life – lets make some music make some money find some models for wives – I'll move to Paris shoot some heroin and fuck with the stars – you man the island and the cocaine and the elegant cars.”
6. Plants And Animals – Parc Avenue Enn eitt snildarbandið frá Kanada. Lífrænt og fljótandi, þjóðlagakennt – og jafnvel ögn hippalegt. 7. Deerhunter – Microcastle/Weird Era Cont. Tvær fyrir eina ... geri aðrir betur í kreppunni! Og það sem meira er þá gefur leynidiskurinn Weird Era Cont. aðalplötunni Microcastle ekkert eftir. Helvítis fokking fokk! Frábært nýbylgjurokk þar sem gítarinn er áberandi! 8. Cut Copy – In Ghost Colours Góður eitísfílingur svífur hér yfir vötnum þar sem víða er komið við. Listamenn á borð við ELO, Human League, Depeche Mode og Fleetwood Mac koma óneitanlega upp í hugann. Eintómir slagarar – eintóm gleði! 9. The Walkmen – You & Me Þétt plata og heilsteypt þó að lagið In The New Year fari þar fremst á meðal jafningja – snilldar lag sem að ósekju hefði mátt skora hærra á listanum mínum yfir bestu lög ársins. Annars er platan uppfull af flottum lagasmíðum auk þess sem það er ótrúlega Kúl sánd á henni – svolítið sorglegt á köflum ... sem er að sjálfögðu kostur! 10. Of Montreal – Skeletal Lamping Ef Of Montreal væri barn þá væri það pottþétt með greiningu! Þvílíkur bútasaumur! Á Skeletal Lamping eru 15 lög sem skiptast upp í 3-4 kafla hvert! Platan er gallsúr en á sama tíma endalaus uppspretta flottra melódía. Heimurinn er að breytast og sífellt að verða hraðari. Maðurinn verður á sama tíma eyrðarlausari. Þannig að þetta er kannski popptónlist framtíðarinnar!
11. Frightened Rabbit – The Midnight Organ Fight Skotland ungar út góðum indísveitum um þessar mundir. Þessi hljómsveit fær þó ekki mikla umfjöllun hérlendis þrátt fyrir að hafa gefið út tvær suddalega góðar plötur. Hef þó á tilfinningunni að hróður hennar eigi eftir að aukast. Þétt, hrá, einföld og umfram allt melódísk sveit! 12. FM Belfast – How To Make Friends Án ef besta íslenska plata ársins! Og ásamt Oracular Spectacular partýplata ársins! – verst bara að partý-ið á Íslandi er búið! 13. Pete & The Pirates – Little Death Forsprakkinn Tom Sanders gaf út árið 2006 undir nafninu Tap Tap hina frábæru Lanzafame. Svo kom í ljós að það var bara hliðar/gæluverkefni og greinilegt að aðalpúðrið átti að fara í Pete & The Pirates. Þó að Tap Tap sé að mínu mati öllu ferskara og skemmtilegra band stendur platan Little Death fyrir sínu. Stórgóð og heillandi plata – melódísk og hressandi! 14. Glasvegas – Glasvegas Ég býð hina kinnina og held mig við Bretlandseyjar! Enga langdrægni – hryðjuverkalögin voru jú sett 2008! ... og kannski sleppur þetta líka fyrir horn þar sem þessi sveit er skosk líkt og Frightened Rabbit. Glasvegas var hæpuð af bresku pressuni og aldrei þessu vant stóð hæpið undir væntingum – það gerist ekki oft enda hefur breska pressan yfir höfuð með eindæmum leiðinlegan tónlistarsmekk! Þykkur skoskur hreimur er kostur, svartnætti í textum – kostur ... „I had my choice, I took my choice, That was to stand and fight the Fleeto Boys, But now I find myself running for my life, I seen their swords and their knives, And I changed my mind ...” 15. Sigur Rós – Með suð í eyrum við spilum endalaust Auðmeltasta plata Sigur Rósar til þessa. Fullt af poppslögurum þó að dramantíkin sé enn til staðar. Verður spennandi að sjá næsta skref – vonandi meira popp, meira stuð!?!
16. TV On The Radio – Dear Science Mér fannst þessi plata ekkert sérstaklega spennandi í fyrstu en hún óx við hverja hlustun og nú er svo komið að hún er kannski vanmetin hjá mér í sæti sextán sem jafnan er kennt við Íslendinga og Eurovision! Poppaðasta plata Tv On The Radio til þessa þar sem gælt er við allskonar strauma og stefnur ... á örugglega eftir að renna henni töluvert í gegn fram eftir 2009. 17. Shearwater – Rook Þetta er vina/systrasveit Okkervil River en báðar koma þær frá Austin í Texas. Það eru í sjálfu sér ágætis meðmæli og enn betri meðmæli að hún skuli smeygja sér inn á listann á meðan að plata Okkervil River, hin stórgóða The Stand Ins, er út í kuldanum. Hádramatískt folkrokk! 18. M83 – Saturdays = Youth Hér er önnur plata þar sem nostalgían og eitísið eru alsráðandi og ef eitthvað er þá gengur Anthony Gonzales forsprakki M83 skrefinu lengra en Cut Copy og segja má að Saturdays = Youth sé nokkurs konar óður til níunda áratugarins þar sem syntesæserinn er í hávegum hafður. 19. Why? – Alopecia Hipp-popp, rapp, indie með dassi af sjálfsvorkunn – sem á kannski bara ljómandi vel við núna ekki satt? 20. No Age – Nouns Hrátt og pönkað! Brjálað gítarglamur með hressilegu feedbakki.
»
02.01.2009 19:04:48 / s.már
Það er enginn bloggari með bloggurum nema að birta einhverskonar árslista. Ég er þar enginn undantekning en tek þó fram eins og aðrir að það er algjörlega tilgangslaust. Ég veit að Liverpool var lang besta liðið í ensku úrvalsdeildinni fyrir áramót af því að það tapaði fæstum stigum en það er mjög hæpið að keppa í tónlist, sem og öðrum listgreinum, þar sem stigagjöfin byggist á huglægu mati.
Þó finn ég alltaf í lok hvers árs nístandi innri þörf á að hripa niður lista yfir það sem mér finnst standa upp úr í tónlist á árinu. Og þó að ég telji mér trú um að það sé mest fyrir sjálfan mig knýr sú von mig líka áfram að það megi verða til þess að kristna þær sálir sem villast hingað inn. Það má ekki gleyma því að þó að smekkur fólks sé mismunandi þá hafa bara sumir betri smekk en aðrir!
Þar sem tími shöffulsins og playlistanna er runninn upp ætla ég að byrja á að birta val mitt á þeim lögum sem mér fannst standa upp úr árið 2008. Listi yfir bestu plötur ársins kemur innan tíðar. 1. Portishead – The Rip Tregafullt lag og stórbrotið. Fæ alltaf nettan kvíðahnút í magan þegar ég hlusta á það – sem er jákvætt! Beth Gibbons er díva! 2. Fleet Foxes – White Winter Hymnal Þvílík fergurð! Þvílíkt sing-a-long! ... kemur manni alltaf í gott skap! Algjör klassíker! 3. MGMT – Time To Pretend Partýslagari ársins, það er ekki hægt að vera öllu svalari en MGMT. Þetta verður opnunarlag á Sing Star Indie vol. 1 sem ég hef í hyggju að gefa út á árinu. 4. Bon Iver – Skinny Love Einsemdin og þjáningin er svo áþreifanleg að manni stendur næstum því ekki á sama. Vona að kappinn sé enn á lífi! 5. Of Montreal – Id Engager Ljómandi diskósmellur þar sem Kevin Barnes varar konur heimsins að láta ekki draga sig á tálar „He’s just a slutty little flirt, and sister – he’s gonna hurt you, watch yourself – ladies, I’m screaming out to you – from the depths of this phallocentric tyranny.”
6. The Walkmen – In The New Year Indíslagari af guðs náð! Frábært lag af frábærri plötu. 7. The Juan Maclean – Happy House Tæpar þrettán mínútur af dúndrandi electró til að skaka sér við – er hægt að biðja um meira? 8. Animal Collective – Water Curses Einn allra melódískasti smellur Animal Collective til þessa. Þó langt því frá að vera léttmeti fyrir leikmenn! Áhrif Animal Collective eru farin að sjást víða í dag sem er gott! 9. Wolf Parade – Call It A Ritual Frábær slagari frá einni af allra bestu hljómsveit í heiminum í dag. 10. Frightened Rabbit – The Modern Leper Skotarnir alltaf hressir “I’ve crippled your heart a hundred times – And still can’t work out why ...” Hrikalega spennandi band!
11. Plants And Animals – Bye Bye Bye Helvíti kúl að byrja plötu á því að kveðja! Melódískt og hressandi og minnir jafnframt á að maður verður að vera á tánum í lífinu - þ.e.a.s. ef maður vill ekki vera skilinn eftir: “What’s gonna happen to you? – You have woke up too soon and found the world rearranged – And now your feeling have changed – Say goodbye to before – Bye Bye Bye – You are not welcome anymore.” 12. Glasvegas – Geraldine Annar svakalegur smellur frá Skotlandi. Þessi sveit gæti orðið stór! 13. Nada Surf – See These Bones Hélt alltaf að Nada Surf væri þessi týpíska óþolandi háskólarokksveit þannig að platan Lucky kom þægilega á óvart. Önnur lög komast þó ekki með tærnar þar sem See These Bones hefur hælana. Stórkostlegt popplag! 14. FM Belfast – Underwear Veljum íslenkst! ... a.m.k. þegar um dansvænt popp er að ræða! 15. Plants And Animals – Faerie Dance Epískt meistaraverk!
16. The Sea And Cake – Weekend Svallt Indiepopp hjá þessum öldnu meisturum. 17. Sigur Rós – Illgresi Sigur Rós nýtur sín vel í einfaldleikanum. 18. Cut Copy – Unforgettable Season Slagari sem tekur mann aftur í tíma ... jákvætt þó að maður sé yfirleitt kominn með sítt að aftan í huganum áður en lagið er hálfnað. 19. No Age – Brain Burner Hressilegt, hrátt nýbylgjurokk. 20. Tapes n’ Tape – Hang Them All Rokk og ról! ... og það af bestu gerð. Kom á óvart hve platan Walk It Off fékk slæma dóma!
21. Deerhoof – The Tears And Music Of Love Deerhoof opna Offend Maggie hrikalega sterkt. Virðast ætla að leggja það í vana sinn að byrja plöturnar sínar á fullu blasti! 22. Deerhunter – Microcastle Í fyrstu draumkennt, næstum svæfandi en endar á svaklegri keyrslu – geggjað! 23. M83 – Graveyard Girl Nýrómantík og indie er hérna blandað snilldarlega saman. Minnir samtímis á The Cure og Ultravox – getur ekki klikkað! 24. Retro Stefson – Paul Is Dead Enn eitt íslenskt – undirstrikar gott íslenskt tónlistarár! 25. Adem – To Cure A Weakling Child/Boy Girl Song Frábær lo-fi yfirbreiðsla á lögum teknósboltans Aphex Twin.
26. Air France – No Excuses Svíarnir sýna enn og aftur að þeir kunna þetta! 27. Why? – The Vowels Pt. 2 „Cheeri-a, cheeri-e, cheeri-i, cheeri-o, cheeri-u” … æðislegt! 28. Okkervil River – Lost Coastlines Feel-good lag ársins! 29. The Dodos – Fools Kraftmikill slagari sem sækir greinilega í verk Animal Collective. 30. Blitzen Trapper – Not Your Lover Hef alltaf verið svolítið svag fyrir svona tregafullum ballöðum. „So if you watch me while I’m sleeping in my bed – Well I’m million miles away inside ... When I’m awake, I’m yours and I’m sticking around – Gonna walk on down your shore – But in my sleep I’m not your lover anymore.”
»
10.12.2008 23:01:14 / s.már
Ég er að fara í fertugsafmæli um helgina. Svei mér þá ef þetta sé ekki bara mitt fyrsta fertugsafmæli – sem er þó kannski ekki svo skrýtið þar sem ég er enn á besta aldri og á töluverðan spotta í þennan stóran áfanga sem fertugsafmælið óneitanlega er. Reynar var afmælisbarnið í krísu þegar á hólmann var fyrst komið og gerði tilraun til þess að flýja örlögin með því að leigja sér Mini yfir afmælishelgina í stað þess að bjóða okkur vinunum til veislu líkt og hann hafði lofað kokhraustur fyrr í haust. En við vorum ákveðnir í að láta hann ekki sleppa og neyða hann til þess að horfast í augu við hina grimmu staðreynd lífsins. Í síðustu viku sendum við honum þess vegna eftirfarandi boðskort í pósti:  Auðvitað þáði hann hrærður boðið og fannst sem að hann ætti örláta vini. Það er auðvitað rétt hjá honum! En hann var í Vöku á sínum yngri árum og ætti því að vita að það er ekki neitt til sem heitir ókeypis máltíð! Hvernig ætli þynnkan fari í mann á fimmtugsaldri?
»
06.12.2008 12:20:12 / s.már
Í dag spurði Reynir mig hvort það væri erfitt á Íslandi núna. Ég reyndi að útskýra fyrir honum eftir bestu getu að það væri kreppa á Íslandi. Einstaka menn hefðu orðið úr hófi gráðugir. Sumir hefðu komist yfir almannafé, aðrir farið í útrás eins og víkingar forðum en allir hefðu þeir spennt bogann of hátt án þess að ríkisvaldið hefði svo mikið sem lyft litla fingri.
Svo hefðu lánalínur skyndilega lokast og bankarnir farið í þrot, fólk misst vinnuna og stæði nú reglulega í biðröð hjá mæðrastyrksnefnd til að krækja sér í smá bita til að hafa í sig um jólin en lægi þess á milli í kör til að spara kaloríur.
Og þá spurði hann mig eins og sannur Íslendingur. „Mun þetta reddast” og ég sagði „Já.”
»
02.12.2008 16:33:25 / s.már
Ég er búinn að sækja Reyni í skólann í dag. Yfirleitt finnst mér gaman að skjótast eftir stráknum og fá smá innsýn í skólalífið hjá honum. En í dag gerði ég það af skyldurækninni einni saman og þungu fargi var af mér létt þegar ég kom aftur heim.
Kvíðahnúturinn í maganum á mér átti rót sína að rekja til atburðar sem átti sér stað þegar ég sótti hann í gær. Þá var hann úti í fótbolta, eins og svo oft áður, með Dennis vini sínum. Ég geri það ekki oft en ég lét til leiðast að taka einn leik við þá enda hef ég heilmikla reynslu að miðla til þeirra. Þess utan hefur maður nánasta alltof mikinn frítíma fyrir börnin sín í þessu fyrirmyndarsamfélagi sem í Svíþjóð óneitanlega er þannig að á einvhern óskiljanlegan hátt myndast hjá foreldrum innri pressa að taka þátt í leikjum barna sinna!
Í hita leiksins vildi þó ekki betur til en að ég sparkaði boltanum í strák í þriðja bekk – sem reyndar var kominn yfir á okkar vallarhelming!
Hann reyndist óhuggandi þrátt fyrir að ég hafi beðist afsökunar þúsund sinnum á milli þess sem ég tautaði „jag är hemskt ledsen.” En allt kom fyrir ekki, drengurinn vildi bara ekki hætta að gráta – þrátt fyrir að skotið hafi ekki verið neitt rosalega fast! Hann hvarf svo af vellinum ásamt tveimur vinum sínum skömmu síðar.
Ég átti því allt eins von á að þeir hefðu annað hvort safnað liði gegn mér í dag eða að starfsfólk skólans hefði hengt upp tilkynningu þess efnis að foreldrar mættu ekki undir neinum kringumstæðum taka þátt í leikjum á skólalóðinni.
En þetta gekk vandræðalaust fyrir sig enda bretti ég kragann á jakkanum hátt upp, dró húfuna niður í augun og gekk hröðum, ákveðnum skrefum inn í skólann, hóaði í strákinn og gekk sömu hröðu, ákveðnu skrefum út aftur.
Enginn abbaðist upp á mig en ég fann fyrir óþægilegum augngotum frá starfsfólki skólans og nokkrum foreldrum, auk þess sem einhver krakki sem varð á vegi mínum byrjaði að kjökra.
Ætli ég biðji samt ekki Gunnu um að sækja á morgun!
»
25.11.2008 23:08:07 / s.már
Birtingamynd kreppunnar verður áþreifanleg á ýmsa vegu. Ég fékk pakka frá fjölskyldunni í B-pósti um daginn! Það hefur aldrei gerst áður! Átti svo sem alveg eins von á að Newman, Cliff Clavin eða jafnvel Ace Ventura kæmi honum til skila!
En ég þurfti á endanum að skjótast eftir honum sjálfur – þ.e.a.s. út á pósthús hérna í Flemingsberg enda sér sænska póstþjónustan ekki einu sinni sóma sinn í því að skutla A-pökkunum heim!
Ég held að pakkinn hafi þó ekki verið lengur á leiðinni en þær sendingar sem ég hef fengið hingað til og hef ekki undan neinu að kvarta enda geri ég ráð fyrir að mismuninum hafi verið spanderað í dýrari gjöf handa mér!
Ég ætlaði fyrst ekki að þora að sækja sendinguna þar sem ég hef mest haldið mér innan dyra eftir að í sænskum fjölmiðlum kom fram að reiði Íslendinga beindist nú í sívaxandi mæli gegn Svíum. Okkur finnst víst ömurlegt hvað þeir drógu lappirnar í lánveitingu til Íslands. Það var meira að segja stór mynd af herra Ólafi reiðilegum á svip í Metro og Svenska Dagbladet hafði þetta auk þess eftir ónafngreindum aðila tengdum ríkisstjórn Íslands.
Ég skil Svíana reyndar vel! Ekki myndi ég lána manni sem væri kominn langt fram yfir á heftinu sínu – alveg sama þó hann væri krúttlegur náfrændi minn.
Þetta er auðvitað algjör niðurlæging! Ísland er eins og maður sem misst hefur niðrum sig buxurnar á almannafæri og á meðan hann reynir veikum mætti að halda þeim uppi með annarri hendinni steytir hann hnefanum framan í saklausa vegfarendur með hinni.
Allir horfa á okkur vorkunnaraugum en vilja ekki fyrir sitt litla líf koma nálægt – a.m.k. ekki þar til við höfum náð að hysja sæmilega upp um okkur!
Þó að ég sjálfur sé töluvert krepptur þessa daganna læt ég engan bilbug á mér finna. Fór á góða Okkervil River tónleika um daginn en sleppti reyndar öðrum með Wolf Parade í síðustu viku og missti þar sennilega af einni allra bestu (indí)rokksveit í heiminum í dag. Mæli eindregið með plötunni þeirra At Mount Zoomer sem kom út fyrr á árinu – maður þarf ekki að renna henni nema svona 20 sinnum til að átta sig á snilldinni!
En það er ekki eins og kvöldinu hafi verið kasta á glæ í einhverju kreppuþunglyndi. Ég fór í staðinn á stórskemmtilegan handboltaleik þar sem Hammarby tók á móti skánarliðinu Ystad. Hápunkturinn var að sjálfsögðu það að vera undir sama þaki og í návist við Staffan “Faxa” Olsson (eða Staffan “Håret” Olsson eins og hann er kallaður hérna).
Erikdalsshallen, heimavöllur Hammarby, er líka stórkostlegur. Salurinn sem er eldgamall, byggður á árunum 1937-38, er svo knappur að þeir sem sátu á varamannabekknum urðu að vera með fæturnar inni á vellinum.
Það hafði þó engin áhrif á leikinn þar sem allir höguðu sér eins og sönnum íþróttamönnum sæmir og enginn var felldur – a.m.k. enginn á leið í hraðhlaup. Staffan sýndi enn og aftur snilli sína og sannaði að hann er hreint ekki síðri þjálfari en leikmaður. Hammarby rústaði leiknum 33-20 enda svínvirkuðu leikkerfin hans þetta kvöld og þá einkum Vulcan 2!
Að lokum ætla ég að benda á nokkur lög sem eiga vel við á þessum síðustu og verstu tímum. Ég persónulega hef hlustað mest á “I See A Darkness” með Bonnie “Prince” en “Last Year’s Rain Didn’t Fall Quite So Hard” með The Twilight Sad fylgir fast á eftir.
Ef einhverjir eru hins vegar enn í afneitun get ég mælt með “What Diffrence Does IT Make?” eða “William, It Was Really Nothing” með The Smiths.” Og helstu persónum og leikendum kreppunnar bendi ég á hljómsveitina God Love You For A Liar!
»
03.07.2008 23:23:31 / s.már
»
02.07.2008 22:26:35 / s.már
Þá er evrópukeppninni í Sviss og Austurríki lokið og ekki frá því að maður finni fyrir smá fráhvarfi en þó engu ‘Cold Turkey’ enda held ég mér stabílum með Allsvenskan og DVD disknum “Match of the Day” sem BBC gaf út árið 2004 um allt það markverðasta í ensku knattspyrnunni á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum. Svo styttist auðvitað í heimsmeistarakeppnina sem fer fram í Suður Afríku árið 2010.
Það voru Spánverjar sem stóðu að þessu sinni uppi sem sigurvegarar og rufu þar með ‘jinxið’ og unnu sitt fyrsta stórmót síðan 1964. Þó að Hollendingar hafi heillað mest í upphafi og Rússar hafi komið sterkir inn um miðbik mótsins má með sanni segja að Spanjólarnir séu vel að sigrinum komnir. Liðið var sannfærandi í gegnum alla keppnina og tapaði ekki leik auk þess sem það spilaði áhrifaríkan og skemmtilegan sóknarbolta.
En þar sem ég elska góðan „Kick n’ Run bolta” finnst mér þeir hefðu að ósekju mátt beita aðeins meira löngum sendingum. En það er kannski til of mikils mælst hjá liði sem er byggt upp á miðjumönnunum Xavi og Iniesta sem ekki bara elska þríhyrningaspil og stuttar og einfaldar sendingar heldur telja það einnig langa sendingu ef boltanum er spyrnt þrjá metra eða lengra.
Xavi átti einmitt eina af þessu ‘löngu’ sendingum inn á Torres þegar hann gerði sigurmarkið á móti Þjóðverjum í úrslitaleiknum á sunnudaginn.
Þjóðverjar héldu þó áfram að koma mér á óvart og spiluðu oft ágætan bolta í mótinu. En á sama tíma og skemmtanagildið eykst minnkar skilvirknin. Þýska mulningsvélin má muna sinn fífill fegurri. Þýskaland var alltaf landið sem gafst aldrei upp og náði að snúa leikjum sér í hag á ótrúlegri seiglu. Á sunnudaginn voru þeir hins vegar aldrei líklegir fyrir utan svona 5-10 mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks. Eftir það gáfust þeir upp og Spánverjar voru miklu líklegri að bæta við marki heldur en þeir að jafna.
Svona uppgjöf sá maður aldrei á 30 ára stórveldistíma þýska landsliðsins í knattspyrnunni sem hófst upp úr 1970 þegar keisarinn Franz Beckenbauer steig fram í sjónarsviðið.
Sigurvegari „Hins geysivinslæla getraunaleiks Snorra Péturs og Didda™” Viktor Andri Snorrason þekkir tæplega til þessa tímabils enda fæddur árið 1996 sama ár og Þjóverjar unnu sinn síðasta evrópumeistaratitil.
Hann á hrós skilið að sigra í sinni fyrstu getraunakeppni aðeins tólf ára gamall. Sérstaklega þegar haft er í huga að hann hafði betur í viðureign við gamla refi sem margir hverjir eru að taka þátt í sinni 3. eða 4. keppni og eiga þar að auki að baki samanlagt vel yfir 100 ára reynslu í fótboltaglápi.
En á móti má kannski segja að Viktor sé laus undan oki gamalla kreddna. Hve margir hugsuðu t.a.m. þegar þeir fylltu út spánna að „í þýska landsliðinu eru bara ofurmenni sem kunna ekki að tapa” eða „Ítalír taka þetta á varnarleiknum eins og vanalega.” Og hvernig átti Viktor að vita að „þó að Spánn sé stórþjóð í fótbolta fara þeir alltaf á taugum í stórmótum.”
En ekki í ár! Nýir og ferskir vindir blása um fótboltann og þess vegna eru bæði Spánverjar og Viktor Andri verðugir sigurvegarar!
Þáttakandi |
I. hluti |
II. hluti |
III. hluti |
IV. Hluti |
V. hluti |
VI. hluti |
Samtals |
1 |
Viktor |
19 |
60 |
28 |
10 |
30 |
0 |
147 |
2 |
Jóhann |
18 |
42 |
24 |
10 |
40 |
0 |
134 |
3 |
Gauti |
16 |
54 |
24 |
5 |
30 |
0 |
129 |
4 |
Anton |
12 |
36 |
20 |
15 |
40 |
0 |
123 |
5 |
Hákon2 |
27 |
60 |
28 |
5 |
0 |
0 |
120 |
6 |
Snorri P |
22 |
48 |
28 |
10 |
10 |
0 |
118 |
7 |
Einar |
27 |
36 |
24 |
10 |
20 |
0 |
117 |
8 |
Ingi |
30 |
30 |
20 |
5 |
30 |
0 |
115 |
9 |
Alfreð |
24 |
30 |
20 |
10 |
30 |
0 |
114 |
10 |
Snorri M |
14 |
42 |
24 |
10 |
10 |
0 |
100 |
11 |
Viðar |
14 |
14 |
20 |
10 |
40 |
0 |
98 |
12 |
Óli Ben |
25 |
42 |
24 |
5 |
0 |
0 |
96 |
13-15 |
Gunna |
25 |
48 |
20 |
0 |
0 |
0 |
93 |
13-15 |
Fjóla |
17 |
36 |
20 |
10 |
10 |
0 |
93 |
13-15 |
Addi |
22 |
42 |
24 |
5 |
0 |
0 |
93 |
16 |
Eggert E |
24 |
36 |
32 |
0 |
0 |
0 |
92 |
17 |
Svandís |
9 |
42 |
20 |
10 |
10 |
0 |
91 |
18 |
Svava |
24 |
24 |
24 |
5 |
10 |
0 |
87 |
19 |
Aron |
21 |
30 |
24 |
10 |
0 |
0 |
85 |
20 |
Valdimar |
19 |
30 |
20 |
5 |
10 |
0 |
84 |
21 |
Sunna |
22 |
18 |
20 |
10 |
10 |
0 |
80 |
22 |
Halla |
27 |
30 |
16 |
5 |
0 |
0 |
78 |
23 |
Diddi |
15 |
42 |
20 |
0 |
0 |
0 |
77 |
24 |
Hákon4 |
22 |
30 |
24 |
0 |
0 |
0 |
76 |
25-26 |
Þóra |
15 |
24 |
16 |
10 |
10 |
0 |
75 |
25-26 |
Jóhannes Sig |
19 |
36 |
20 |
0 |
0 |
0 |
75 |
27-29 |
Þyrí |
23 |
12 |
24 |
5 |
10 |
0 |
74 |
27-29 |
Jón Ragnar |
6 |
12 |
16 |
10 |
30 |
0 |
74 |
27-29 |
Guðrún Sch |
17 |
18 |
24 |
5 |
10 |
0 |
74 |
30-31 |
Hákon & Bói |
14 |
18 |
20 |
10 |
10 |
0 |
72 |
30-31 |
Arnar |
14 |
18 |
20 |
5 |
15 |
0 |
72 |
32-34 |
Sigurður Y & Kristinn |
16 |
24 |
16 |
5 |
10 |
0 |
71 |
32-34 |
Sigga |
22 |
24 |
20 |
5 |
0 |
0 |
71 |
32-34 |
Hákon1 |
11 |
30 |
20 |
10 |
0 |
0 |
71 |
35 |
Sæunn |
21 |
18 |
20 |
10 |
0 |
0 |
69 |
36 |
Reynir Hlíðar |
13 |
18 |
16 |
5 |
10 |
0 |
62 |
37 |
Hákon3 |
15 |
18 |
16 |
5 |
0 |
0 |
54 |
38 |
Benni |
11 |
12 |
16 |
5 |
0 |
0 |
44 |
»
28.06.2008 00:01:26 / s.már
Þvílík spenna! Einar Daði og Viktor berjast hatramlega en þó án blóðsúthellinga um fyrsta sætið þegar aðeins einn leikur er eftir. Viktor leiðir keppnina en ef Þýskaland leggur Spán að velli í úrslitaleiknum á sunnudaginn mun Einar standa uppi sem sigurvegari. Ef Spán aftur á móti hampar bikarnum heldur Viktor forystunni og getur þá keypt sér dieselgallabuxurnar sem hann þráir svo heitt!
Reyndar gæti markakóngur keppninnar enn ráðið úrslitum. Þó að Þýskaland verði evrópumeistari gæti Viktor endað sem sigurvegari ef Torres verður markakóngur keppninnar einn eða með öðrum. En það verður víst að teljast svolítið langsótt því hann þyrfti þá að skora þrjú eða fleiri mörk í tapleik ... en honum er trúandi til alls!
Þáttakandi |
I. hluti |
II. hluti |
III. hluti |
IV. Hluti |
V. hluti |
Samtals |
að hluta |
↑ |
Viktor |
19 |
60 |
28 |
10 |
10 |
127 |
↓ |
Hákon2 |
27 |
60 |
28 |
5 |
0 |
120 |
↔ |
Snorri P |
22 |
48 |
28 |
10 |
10 |
118 |
↑ |
Einar |
27 |
36 |
24 |
10 |
20 |
117 |
↑ |
Jóhann |
18 |
42 |
24 |
10 |
20 |
114 |
↓ |
Gauti |
16 |
54 |
24 |
5 |
10 |
109 |
↑ |
Anton |
12 |
36 |
20 |
15 |
20 |
103 |
↑ |
Snorri M |
14 |
42 |
24 |
10 |
10 |
100 |
↓ |
Óli Ben |
25 |
42 |
24 |
5 |
0 |
96 |
↑ |
Ingi |
30 |
30 |
20 |
5 |
10 |
95 |
↑ |
Alfreð |
24 |
30 |
20 |
10 |
10 |
94 |
↓ |
Gunna |
25 |
48 |
20 |
0 |
0 |
93 |
↓ |
Addi |
22 |
42 |
24 |
5 |
0 |
93 |
↑ |
Fjóla |
17 |
36 |
20 |
10 |
10 |
93 |
↓ |
Eggert E |
24 |
36 |
32 |
0 |
0 |
92 |
↑ |
Svandís |
9 |
42 |
20 |
10 |
10 |
91 |
↑ |
Svava |
24 |
24 |
24 |
5 |
10 |
87 |
↓ |
Aron |
21 |
30 |
24 |
10 |
0 |
85 |
↑ |
Valdimar |
19 |
30 |
20 |
5 |
10 |
84 |
↑ |
Sunna |
22 |
18 |
20 |
10 |
10 |
80 |
↓ |
Halla |
27 |
30 |
16 |
5 |
0 |
78 |
↑ |
Viðar |
14 |
14 |
20 |
10 |
20 |
78 |
↓ |
Diddi |
15 |
42 |
20 |
0 |
0 |
77 |
↓ |
Hákon4 |
22 |
30 |
24 |
0 |
0 |
76 |
↓ |
Jóhannes Sig |
19 |
36 |
20 |
0 |
0 |
75 |
↑ |
Þóra |
15 |
24 |
16 |
10 |
10 |
75 |
↑ |
Þyrí |
23 |
12 |
24 |
5 |
10 |
74 |
↑ |
Guðrún Sch |
17 |
18 |
24 |
5 |
10 |
74 |
↑ |
Arnar |
14 |
18 |
20 |
5 |
15 |
72 |
↑ |
Hákon og Bói |
14 |
18 |
20 |
10 |
10 |
72 |
↓ |
Sigga |
22 |
24 |
20 |
5 |
0 |
71 |
↓ |
Hákon1 |
11 |
30 |
20 |
10 |
0 |
71 |
↓ |
Sigurður Y og Kristinn |
16 |
24 |
16 |
5 |
10 |
71 |
↓ |
Sæunn |
21 |
18 |
20 |
10 |
0 |
69 |
↑ |
Reynir Hlíðar |
13 |
18 |
16 |
5 |
10 |
62 |
↓ |
Hákon3 |
15 |
18 |
16 |
5 |
0 |
54 |
↑ |
Jón Ragnar |
6 |
12 |
16 |
10 |
10 |
54 |
↓ |
Benni |
11 |
12 |
16 |
5 |
0 |
44 |
»
27.06.2008 23:22:12 / s.már
Þeir fallegustu !
  
  
  
Og aðrir sem tilheyra rjómanum
Gæðum þessa heims er misskipt! Góður vinur minn sagði eitt sinn að það væri „ekki nóg með að Freddie Ljungberg sé góður í fótbolta heldur er hann líka nærbuxnafyrirsæta.”
Og nú undirstrikar Cristiano Ronaldo þetta óréttlæti heimsins enn og aftur. Ekki nóg með að hann sé það góður í fótbolta að flestir hafi spáð honum markakóngstitlinum heldur hefur hann einnig verið valin fallegasti fótboltamaður fyrr og síðar ásamt hinum franska Franck Ribéry.
Þeir hlutu hvor um sig tvö atkvæði í kosningu sem Getraunaleikur Snorra Péturs og Didda™ stóð fyrir í tilefni keppninnar. Þó verður sanngirninar vegna að taka fram að atkvæðin dreifðust býsna mikið og eftirfarandi leikmenn fengu eitt atkvæði hver; Tevez, Diddi, Bastian Schweinsteiger, Maradonna, Aron Birkir, David Seaman, Carlos Puyol, Totti, Mihaljo Bibercic, Marco Van Basten, Henrik Larsson, Fredrik Ljungberg, Knezevic, Magnin, Kristinn Sigurðarson, Deco, Arnar Már Jóhanesson old boys leikmaður, Ricardo Cabanas og Peter Crouch.
»
23.06.2008 23:24:37 / s.már
Tveggja daga frí! Þvílík grimmd! … og aðeins þrír leikir eftir! Heimurinn er að hrynja! … er ekki hægt að fá einhverjar endursýningar? … eða fráhvarfspillur? Ojæja ... kannski bjórinn dugi!
Þáttakandi |
I. hluti |
II. hluti |
III. hluti |
Samtals |
Lið eftir |
í keppni |
↔ |
Hákon2 |
27 |
60 |
28 |
115 |
1 |
↔ |
Viktor |
19 |
60 |
28 |
107 |
2 |
↑ |
Snorri P |
22 |
48 |
28 |
98 |
2 |
↑ |
Gauti |
16 |
54 |
24 |
94 |
1 |
↓ |
Gunna |
25 |
48 |
20 |
93 |
0 |
↑ |
Eggert E |
24 |
36 |
32 |
92 |
0 |
↓ |
Óli Ben |
25 |
42 |
24 |
91 |
1 |
↓ |
Addi |
22 |
42 |
24 |
88 |
1 |
↓ |
Einar |
27 |
36 |
24 |
87 |
2 |
↑ |
Jóhann |
18 |
42 |
24 |
84 |
2 |
↓ |
Ingi |
30 |
30 |
20 |
80 |
1 |
↑ |
Snorri M |
14 |
42 |
24 |
80 |
2 |
↔ |
Diddi |
15 |
42 |
20 |
77 |
0 |
↑ |
Hákon4 |
22 |
30 |
24 |
76 |
0 |
↔ |
Jóhannes Sig |
19 |
36 |
20 |
75 |
0 |
↑ |
Aron |
21 |
30 |
24 |
75 |
2 |
↓ |
Alfreð |
24 |
30 |
20 |
74 |
2 |
↓ |
Halla |
27 |
30 |
16 |
73 |
1 |
↓ |
Fjóla |
17 |
36 |
20 |
73 |
2 |
↑ |
Svava |
24 |
24 |
24 |
72 |
2 |
↓ |
Svandís |
9 |
42 |
20 |
71 |
2 |
↓ |
Valdimar |
19 |
30 |
20 |
69 |
1 |
↔ |
Anton |
12 |
36 |
20 |
68 |
2 |
↔ |
Sigga |
22 |
24 |
20 |
66 |
1 |
↔ |
Hákon1 |
11 |
30 |
20 |
61 |
2 |
↔ |
Sunna |
22 |
18 |
20 |
60 |
2 |
↑ |
Sæunn |
21 |
18 |
20 |
59 |
2 |
↑ |
Þyrí |
23 |
12 |
24 |
59 |
1 |
↑ |
Guðrún Sch |
17 |
18 |
24 |
59 |
1 |
↓ |
Sigurður Y og Kristinn |
16 |
24 |
16 |
56 |
1 |
↓ |
Þóra |
15 |
24 |
16 |
55 |
2 |
↑ |
Arnar |
14 |
18 |
20 |
52 |
1 |
↑ |
Hákon og Bói |
14 |
18 |
20 |
52 |
2 |
↓ |
Hákon3 |
15 |
18 |
16 |
49 |
1 |
↑ |
Viðar |
14 |
14 |
20 |
48 |
2 |
↓ |
Reynir Hlíðar |
13 |
18 |
16 |
47 |
1 |
↔ |
Benni |
11 |
12 |
16 |
39 |
1 |
↔ |
Jón Ragnar |
6 |
12 |
16 |
34 |
2 | Eins og sjá má er baráttan á toppnum orðin að æsispennandi þriggja hesta hlaupi. Hákon annar leiðir enn keppnina og er með 8 stiga forskot á Viktor og 17 stig á Snorra Pétur sem smellti sér í þriðja sætið með góðum árangri í þriðja hluta keppninnar.
Snorri Pétur og Viktor eiga tvö lið eftir í keppni en Hákon2 aðeins eitt og því er munurinn í raun enn minni. Úrslitin gætu ráðist á úrslitaleiknum, réttum evrópumeistara eða jafnvel réttum markaskorarar …
| |
Lið eftir í keppni |
Heimsmeistari |
Mögulegur markakóngur keppninnar |
| Hákon2 |
Spánn |
Ítalía |
Enginn |
| Viktor |
Þýskaland og Spánn |
Spánn |
Fernando Torres |
| Snorri P |
Þýskaland og Spánn |
Portúgal |
Fernando Torres |
»
19.06.2008 21:25:11 / s.már
Kannski að umbreytingin sé að gerast hraðar en ég átti von á! Að minnsta kosti varð ég svekktari en ég átti von á þegar Svíar duttu úr leik í gærkvöldi. En Rússarnir áttu skilið að komast áfram og í raun hefði sigur þeirra getað orðið stærri. Það verður spennandi að sjá hvort þeir geri Hollendingum skráveifu í 8-liða úrslitum!
Auðvitað eru Hollendingar samt líklegri enda búnir að vera frábærir hingað til en Guus Hiddinik þjálfari Rússa hefur gríðalega reynslucog kom meðal annars Hollendingum í undanúrslit á HM árið 1998 og Suður Kóreu sömuleiðis árið 2002 sem hlýtur að teljast nokkuð góður árangur.
En skítt með það og að alvöru lífsins. Nú er allt að gerast í getraunaleiknum. Tveir fyrstu hlutarnir kláruðust með riðlakeppninni í gær og línur eru heldur betur teknar að skýrast.
Ingi var efstur eftir fyrsta hlutann með 30 stig. Einar Daði, Hákon2 og Halla komu öll á hæla hans með 27 stig. Í þessum hluta skildu ekki nema 24 stig efsta og neðsta sæti og allt ennþá galopið.
Annar hluti var mun afgerandi á framgang keppninnar enda var hægt að fá 6 stig fyrir hvert lið sem var í réttu sæti í hverjum riðli. Hákon2 og Viktor báru höfuð og herðar yfir aðra keppendur í þessum hluta og fengu hvor um sig 60 stig sem þýðir að þeir hafi verið með 10 lið af 16 í réttu sæti!
Í appelsínugulu dálkunum má sjá hvað hver þátttakandi á mörg lið eftir í keppninni og hversu marga rétta leiki þeir eru með í 8-liða úrslitum. Þeir gefa þannig til kynna stigafjölda í þriðja hlutanum og vísbendingu um hvaða keppandi sé sigurstranglegastur í keppninni. Eggert á til að mynda öll sín 8 lið eftir, Hákon2, Viktor og Snorri Pétur eiga 7 lið hver og þeir fjórir verða að teljast í lykilaðstöðu fyrir endasprettinn.
En leiknum er samt sem áður langt frá því að vera lokið. Maður getur alltaf vonast til þess að vera fyrir ofan besta vininn eða það sem kannski er mikilvægara – makann.
Þáttakandi |
I. hluti |
II. hluti |
Samtals |
Lið eftir |
Réttir leikir í |
I + II |
í keppni |
8-liða úrslitum |
↑ |
Hákon2 |
27 |
60 |
87 |
7 |
1 |
↑ |
Viktor |
19 |
60 |
79 |
7 |
3 |
↑ |
Gunna |
25 |
48 |
73 |
5 |
2 |
↑ |
Snorri P |
22 |
48 |
70 |
7 |
2 |
↑ |
Gauti |
16 |
54 |
70 |
6 |
2 |
↑ |
Óli Ben |
25 |
42 |
67 |
6 |
1 |
↑ |
Addi |
22 |
42 |
64 |
6 |
0 |
↓ |
Einar |
27 |
36 |
63 |
6 |
0 |
↓ |
Ingi |
30 |
30 |
60 |
5 |
0 |
↓ |
Eggert E |
24 |
36 |
60 |
8 |
0 |
↑ |
Jóhann |
18 |
42 |
60 |
6 |
1 |
↓ |
Halla |
27 |
30 |
57 |
4 |
1 |
↑ |
Diddi |
15 |
42 |
57 |
5 |
2 |
↑ |
Snorri M |
14 |
42 |
56 |
6 |
2 |
↑ |
Jóhannes Sig |
19 |
36 |
55 |
5 |
0 |
↓ |
Alfreð |
24 |
30 |
54 |
5 |
0 |
↑ |
Fjóla |
17 |
36 |
53 |
5 |
1 |
↓ |
Hákon4 |
22 |
30 |
52 |
6 |
1 |
↓ |
Aron |
21 |
30 |
51 |
6 |
0 |
↑ |
Svandís |
9 |
42 |
51 |
5 |
1 |
↔ |
Valdimar |
19 |
30 |
49 |
5 |
0 |
↓ |
Svava |
24 |
24 |
48 |
6 |
1 |
↑ |
Anton |
12 |
36 |
48 |
5 |
1 |
↓ |
Sigga |
22 |
24 |
46 |
5 |
0 |
↑ |
Hákon1 |
11 |
30 |
41 |
5 |
0 |
↓ |
Sunna |
22 |
18 |
40 |
5 |
0 |
↔ |
Sigurður Y og Kristinn |
16 |
24 |
40 |
4 |
1 |
↓ |
Sæunn |
21 |
18 |
39 |
5 |
0 |
↓ |
Þóra |
15 |
24 |
39 |
4 |
0 |
↓ |
Þyrí |
23 |
12 |
35 |
6 |
0 |
↓ |
Guðrún Sch |
17 |
18 |
35 |
5 |
0 |
↓ |
Hákon3 |
15 |
18 |
33 |
4 |
0 |
↓ |
Arnar |
14 |
18 |
32 |
5 |
0 |
↑ |
Hákon og Bói |
14 |
18 |
32 |
5 |
0 |
↓ |
Reynir Hlíðar |
13 |
18 |
31 |
4 |
0 |
↓ |
Viðar |
14 |
14 |
28 |
5 |
0 |
↓ |
Benni |
11 |
12 |
23 |
4 |
0 |
↔ |
Jón Ragnar |
6 |
12 |
18 |
4 |
0 |
»
16.06.2008 21:00:10 / s.már
Christiano Ronaldo verður markahæsti leikmaður keppninnar ef eitthvað er að marka spá okkar í getraunaleiknum. En líklega verðum við að treysta á að hann fari að leggja minni áherslu á útlitið og meiri áherslu á það sem hann gerir næstbest, þ.e. að skora (en tvöföldu skærin eru auðvitað ennþá hans helsta sérgrein).
Og það kannski dugir ekki til, a.m.k. ekki á meðan David Villa heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Spánverja en engin og þá meina ég engin nefndi hann til sögunnar í vali á markakóngi keppninnar.
Fernando Torres er næst líklegastur til að hreppa hnossið að okkar mati og jafnir í þriðja og fjórða sæti koma svo Ruud Van Nistelrooy og Milan Baros.
Ætli það sé tilviljun að í fjórum efstu sætunum sé einn núverandi og einn fyrrverandi leikmaður frá bæði stórliði Liverpool og Manchester United? Tja ... kannski þegar kemur að Milan Baros því ég held að hann hafi bara fengið stig hjá þeim sem gleymdu að velja markaskorara þegar þeir fylltu út skjalið.
Alls komust 30 manns á lista en til þessa hafa bara 14 þeirra sett boltann í netmöskva andstæðinganna (og skorað 18 mörk af þeim 46 sem hafa til þessa verið skoruð í mótinu). Nú er bara hugsa vel til og hvetja sinn mann til dáða því hann getur ráðið úrslitum í leiknum þegar upp er staðið.
| Leikmaður |
3 stig |
2 stig |
1 stig |
Samtals |
Skoruð mörk |
| Cristiano Ronaldo |
13 |
2 |
4 |
47 |
1 |
| Fernandos Torres |
5 |
9 |
4 |
37 |
1 |
| Ruud Van Nistelrooy |
2 |
3 |
|
12 |
1 |
| Milan Baros |
4 |
|
|
12 |
|
| Miroslav Klose |
1 |
1 |
5 |
10 |
|
| Luca Toni |
1 |
2 |
2 |
9 |
|
| Michael Ballack |
1 |
2 |
1 |
8 |
|
| Ioannis Amanatidis |
|
4 |
|
8 |
|
| Lukas Podolski |
1 |
2 |
1 |
8 |
3 |
| Thierry Henry |
1 |
2 |
|
7 |
1 |
| Wesley Sneijder |
1 |
1 |
1 |
6 |
2 |
| Nuno Gomes |
1 |
1 |
1 |
6 |
|
| Karim Benzama |
|
2 |
|
4 |
|
| Andrei Arshavin |
|
|
4 |
4 |
|
| Nicolas Anelka |
|
1 |
1 |
3 |
|
| David Silva |
1 |
|
|
3 |
|
| Libor Sinoko |
1 |
|
|
3 |
1 |
| Bastian Schweinsteiger |
1 |
|
|
3 |
|
| Adrian Mutu |
|
|
2 |
2 |
1 |
| Robin Van Persie |
|
1 |
|
2 |
1 |
| Mladen Petric |
|
1 |
|
2 |
|
| Deco |
|
1 |
|
2 |
1 |
| Alessandro Del Piero |
|
|
1 |
1 |
|
| Dirk Kuyt |
|
|
1 |
1 |
1 |
| Klaas-Jan Huntelaar |
|
|
1 |
1 |
|
| Arjen Robben |
|
|
1 |
1 |
1 |
| Rafael Van Der Vaart |
|
|
1 |
1 |
|
| Zlatan Ibrahimovic |
|
|
1 |
1 |
2 |
| Niko Kranjcar |
|
|
1 |
1 |
|
| Cesc Fabregas |
|
|
1 |
1 |
1 | Þessi tafla er síður en svo einhver geimvísindi: Stigagjöfin er þannig að hver leikmaður fékk 3 stig þegar hann var í 24 stiga sæti á excelskjalinu, 2 stig þegar hann var í 12 stiga sæti og 1 stig þegar hann var í 6 stiga sæti
»
15.06.2008 22:00:38 / s.már
Ingi og Halla halda enn forystunni þó að aðeins hafi dregið úr getspekinni. Hákon2 og Einar Daði þjarma sem fyrr að þeim. Hástökkvarar umferðarinnar eru þó Gunna, Snorri Pétur og Eggert sem eru tekin að blanda sér í toppbaráttuna. Eins og sjá má gefa örvarnar til kynna hverjir eru á uppleið og hverjir á niðurleið frá síðustu umferð. Sérstaklega gaman að sjá hversu margir sjálfskipaðir sérfræðingar eru með buxurnar á hælunum.
Svo er athyglisvert að konunni gengur yfirleitt betur en manninum sínum í þessum leik sem bendir til þess að liggja yfir fótbolta í 9-12 mánuði á ári er engin trygging fyrir að manni gangi vel!
Þetta virðist fara fyrir brjóstið á sumum og hef ég fengið fjölmarga tölvupósta undanfarnar klukkustundir þar sem farið er hreinlega fram á það að konum verði meinuð þátttaka í leiknum.
Þar sem ég er sannur femínisti mun sú hugmynd aldrei ná fram að ganga. En ég játa þó að það virðist einhver innbyggð skekkja í leiknum. Af 38 þátttakendum eru 11 konur á móti 27 körlum. Af þessum 11 konum eru 9 í efri hlutanum en aðeins 2 í þeim neðri sem gefur ákveðna vísbendingum um að konur hafa ákveðið forskot þegar kemur að því að hafa vit á fótbolta. Þess vegna kemur til greina í komandi keppnum að þeir sem geta sýnt fram á að þeir hafi tippi fái forgjöf.
↑ |
Ingi |
23 |
↓ |
Halla |
23 |
↑ |
Hákon2 |
21 |
↓ |
Einar |
20 |
↑ |
Gunna |
19 |
↑ |
Sunna |
18 |
↑ |
Sigga |
18 |
↑ |
Eggert E |
18 |
↑ |
Snorri P |
17 |
↑ |
Óli Ben |
17 |
↓ |
Alfreð |
17 |
↓ |
Svava |
16 |
↓ |
Þyrí |
15 |
↑ |
Hákon4 |
15 |
↓ |
Sæunn |
14 |
↑ |
Aron |
14 |
↓ |
Addi |
14 |
↓ |
Guðrún Sch |
13 |
↓ |
Fjóla |
13 |
↓ |
Viktor |
12 |
↓ |
Valdimar |
12 |
↑ |
Þóra |
12 |
↑ |
Jóhannes Sig |
11 |
↑ |
Hákon3 |
11 |
↑ |
Diddi |
11 |
↑ |
Snorri M |
10 |
↓ |
Sigurður Y og Kristinn |
10 |
↑ |
Gauti |
10 |
↓ |
Arnar |
10 |
↓ |
Reynir Hlíðar |
9 |
↓ |
Anton |
9 |
↓ |
Svandís |
8 |
↔ |
Jóhann |
7 |
↑ |
Viðar |
6 |
↑ |
Hákon1 |
6 |
↓ |
Benni |
5 |
↓ |
Hákon og Bói |
4 |
↔ |
Jón Ragnar |
3 |
»
14.06.2008 11:50:47 / s.már
Í þessari keppni gilda sömu lögmál og í lífinu sjálfu. Til þess að manni gangi vel verður öðrum að ganga illa. Ég er handviss um að það hlakki í þeim sem spáðu Hollandi velgengni. Ekki bara af því að þeir eiga áfram eftir að hala inn stig á liðinu heldur einnig vegna þeirra fjölmörgu sem spáðu annað hvort Frakklandi eða Ítalíu upp úr dauðariðlinum og langt í keppninni og eru núna á góðri leið með að tapa helling af stigum!
Fyrir þá fjóra einstaklinga sem spáðu bæði Frakklandi og Ítalíu í undanúrslit er þetta náttúrulega ekkert annað en katastrófa – sérstaklega ef maður hefur í huga að Hollendingar eru komnir áfram og geta slakað á og hvílt bestu mennina á móti Rúmeníu í síðasta leik sínum í riðlakeppninni. Ef Rúmenía leggur þá af velli eru bæði lið Frakklands og Ítalíu úr leik!
Til að þátttakendur geti enn betur myndað sér skoðun á því hvaða lið þeir vilja og vilja ekki komist áfram upp úr riðlakeppninni birti ég lista yfir þau lið sem spáð er velgengni af okkur sem tókum þátt í getraunaleiknum.
| Lið |
Evrópumeistarar |
Annað sæti |
Úrslitaleikur |
| Spánn |
8 |
3 |
11 |
| Þýskaland |
7 |
10 |
17 |
| Portúgal |
6 |
7 |
13 |
| Ítalía |
6 |
4 |
10 |
| Holland |
5 |
3 |
8 |
| Frakkland |
3 |
3 |
6 |
| Tékkland |
1 |
2 |
3 |
| Grikkland |
1 |
|
1 |
| Svíþjóð |
1 |
|
1 |
| Austurríki |
|
1 |
1 |
| Króatía |
|
4 |
4 |
| Rússland |
|
1 |
1 | Eins og sjá má eru það ekki bara Ítalía og Frakkland sem eru að setja strik í reikninginn því líklega eiga margir eftir að naga á sér handabakið ef Þýskaland lendir í vandræðum með nágranna sína í Austurríki. Sama má segja ef Spánverjar valda vonbrigðum eins og svo oft áður á stórmótum. Svo geta auðvita bæði Króatía og Tékkland ráðið úrslitum í leiknum enda ekki margir sem spá þeim langt í keppninni.
En auðvitað eru peningar ekki allt. Hér er listi yfir þau lið sem við viljum og þráum að vinni mótið þó að ég setji spurningamerki við Túnis og stórlið San Marínó.
| Vinsælasta liðið |
Atkvæði |
| Spánn |
7 |
| Portúgal |
6 |
| Svíþjóð |
5 |
| Ítalía |
3 |
| Þýskaland |
3 |
| Holland |
3 |
| Túnis |
1 |
| Rússland |
1 |
| Frakkland |
1 |
| San Marínó |
1 |
| Rúmenía |
1 |
| Króatía |
1 | Ég veit ekki hvort það tengist sumarfríunum okkar og góðum minningum við sundlaugabarinn en liðin tvö á Íberískaganum eru vinsæl í ár. Af 33 atkvæðum fengu Spánverjar 7 atkvæði og Portúgalir 6. Svíþjóð er þriðja vinsælasta liðið sem er kannski ekki svo skrítið þar sem fjórtán þáttakenda eru búsettir í landinu þessa stundina. Í raun hefði maður ætlað að þeir yrðu vinsælli en raun ber vitni – sérstaklega þegar maður hefur í huga að tvö af þessum fimm atkvæðum sem þeir fengu koma frá Íslandi.
Þónokkrir þurfa að ákveða hvort þeir ætli í framhaldinu að fylgja hjartanu eða peningahjartanu því aðeins tæplega helmingur þátttakenda hefur trú á að liðið þeirra fari alla leið og hampi evrópumeistaratitlinum. Af þeim 31 sem tilgreindu uppáhaldslið spáðu 14 því sigri í mótinu en 4 aðrir að það kæmist alla leið í úrslit án þess að vinna – skrýtin ákvörðun það sem eflaust á eftir að valda einhverjum þeirra hugarangri 31. júní!
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 30895
Talning
Fyrir 643 dögum
EURO 2008
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 14 janúar
|